Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 20. maí 2013 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Leikmenn Fiorentina brjálaðir: Milan fékk gefins víti
Leikmenn og stjórnarmenn Fiorentina á Ítalíu eru allt annað en sáttir við dómgæsluna í leik Siena og AC Milan sem fór fram í gær, en sigur Milan þýddi að Fiorentina leikur ekki í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.

Hlutirnir litu ansi vel út fyrir Fiorentina í gær þegar liðið slátraði Pescara. Leiknum þar lauk með 5-1 sigri Fiorentina og útlit fyrir að liðið væri á leið í Meistaradeild Evrópu.

Milan var þá 1-0 undir gegn Siena megnið af leiknum, en á 84. mínútu fékk Milan vítaspyrnu sem Mario Balotelli fiskaði. Hann steig á punktinn sjálfur og jafnaði metin áður en Philippe Mexes tryggði Milan stigin þrjú og þar með Meistaradeildarsæti.

Leikmenn og stjórnarmenn Fiorentina vilja meina að brögð hafi verið í tafli og að vítið hafi verið gefins.

,,Milan fékk gefins vítaspyrnu. Ég var vonsvikinn að sjá drauminn hverfa svona, við héldum að við værum á leið í Meistaradeild Evrópu," sagði Manuel Pasqual.

Varnarmaðurinn Gonzalo Rodriguez sagði þá þetta á Twitter: ,,Ef ég segi allt sem ég er að hugsa núna þá spila ég sennilega ekki aftur á Ítalíu,"

Daniel Prade, yfirmaður íþróttamála hjá Fiorentina segir þetta þá ekki hafa komið sér á óvart.

,,Við erum ekki með nægilega mikil völd til þess að stjórna þessum aðstæðum. Það er lítið sem ég get sagt í augnablikinu. Við áttum miklu meira skilið en þetta, en við höfum aldrei fengið neitt gefins."

,,Draumurinn varð að martröð, en við gátum búist við þessu. Það var búið að skrifa handritið,"
sagði hann að lokum.
Slapp
banner