Heimild: Sky
Nokkrir enskir fjölmiðlar, þar á meðal Sky Sports, greina frá því í kvöld að Liverpool hafi áhuga á Kolo Toure varnarmanni Manchester City.
Toure verður samningslaus í sumar og er væntanlega á förum frá City.
Nokkur félög hafa áhuga á leikmanninum og Liverpool er þar á meðal.
Toure verður samningslaus í sumar og er væntanlega á förum frá City.
Nokkur félög hafa áhuga á leikmanninum og Liverpool er þar á meðal.
Jamie Carragher er að hætta og óvissa er í kringum framtíð Martin Skrtel og Sebastian Coates.
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, vonast því til að krækja í hinn 32 ára gamla Toure en hann lék einungis 17 leiki á nýliðnu tímabili.

