Barcelona vann efstu deild á Spáni og fagnaði liðið deildartitlinum eftir 2-1 sigur gegn Valladolid. Carles Puyol, fyrirliði Börsunga, fékk bikarinn afhendan en í stað þess að hampa honum gekk hann með hann til Eric Abidal sem átti að lyfta honum með Tito Vilanova, en alvarlegir sjúkdómar hafa verið að hrjá þá báða undanfarin ár. Alex Song stóð við hlið Abidal og var ekki alveg með á nótunum, brosti og gerði sig líklegan til að taka við bikarnum.

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf.
All rights reserved.

