,,Fyrstu viðbrögðin eru að ég er mjög stoltur af strákunum að koma sér á töfluna í dag með baráttusigri," sagði Páll Viðar Gíslason eftir leik Þórs og Víkings í dag.
,,Það fór svolítið um mig í restina þegar þeir fóru að færa sig ofar. Við höfum fengið mikið af mörkum á okkur seinustu mínúturnar í seinustu leikjum svo eðlilega fór um mig. En við gáfum fá færi á okkur og Wicks varði frá þeim eina sénsinn þeirra í seinni hálfleik."
,,Það gekk hjá okkur í dag að halda hreinu og láta nægja að skora bara eitt mark sem er betra en í seinustu leikjum. Þar leyfðum við andstæðingum að skora þrjú fjögur mörk sem þýðir að við verðum að setja fimm eða sex. Þannig við gerðum það sem við þurftum að gera í dag."
Aðspurður um fjölmiðlaumfjöllun um hans lið hafði Páll þetta að segja; ,,Ég vil ekki benda á einn né neinn og menn mega segja það sem þeim býr í brjósti, bæði um liðið mitt og mig sjálfan. Ég var bara kalla eftir því að menn gerðu þetta svolítið faglega, væru ekki að kalla menn nöfnum og myndu gagnrýna okkur fyrir fótboltann en ekki fyrir annað."
"Við erum með hraða og flotta sóknarmenn en það er ekki nóg. Við verðum að fara að finna þá og nota þá ef við ætlum að fara að geta eitthvað."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.





















