Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mán 20. maí 2013 21:14
Ívan Guðjón Baldursson
Pepsi-deild karla: Fjögur mörk og rautt spjald í Reykjanesbæ
Tryggvi skoraði annað mark leiksins
Tryggvi skoraði annað mark leiksins
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík 2 - 2 Fylkir
1-0 Arnór Ingvi Traustason ('12)
1-1 Tryggvi Guðmundsson ('57)
2-1 Hörður Sveinsson ('78)
2-2 Ásgeir Eyþórsson ('83)
Rautt spjald: Andri Fannar Freysson, Keflavík ('41)

Keflavík gerði 2-2 jafntefli við Fylki á Nettóvellinum í Reykjanesbæ í lokaleik dagsins í Pepsi-deild karla.

Arnór Ingvi Traustason kom heimamönnum yfir snemma í fyrri hálfleik eftir atgang í vítateig Fylkis. Magnús Þórir Matthíasson átti þá fyrirgjöf sem Fylkismönnum tókst ekki að hreinsa og féll boltinn fyrir Arnór Ingva sem skoraði.

Hlutirnir byrjuðu að versna fyrir Keflvíkinga undir lok fyrri hálfleiks þegar Andri Fannar Freysson var rekinn af velli fyrir að brjóta á Tryggva Guðmundssyni innan vítateigs.

David Preece varði vítaspyrnuna stórkostlega og var Magga Matt skipt af velli skömmu síðar til að fylla í skarð Andra í vörninni, en Benis Krasniqi tók stöðu hans á vellinum.

Keflavík var því marki yfir og manni færri þegar flautað var síðari hálfleikinn á. Hlutirnir versnuðu þó þegar Bjarni Þórður varði vítaspyrnu frá Jóhanni Birni Guðmundssyni snemma í síðari hálfleik og þremur mínútum síðar var Tryggvi Guðmundsson búinn að fylgja skoti Viðari Erni Kjartanssyni eftir og jafna leikinn fyrir Árbæinga.

Liðin skiptust á góðum færum en það voru heimamenn sem komust aftur yfir þegar Hörður Sveinsson fylgdi skoti Arnórs Ingva eftir, en Hörður hafði verið inná vellinum í rétt rúma mínútu þegar hann skoraði.

Ásgeir Eyþórsson tryggði dýrmætt stig með jöfnunarmarki á 83. mínútu og eru Keflvíkingar með fjögur stig og Fylkismenn með tvö eftir fjórar umferðir.
Slapp
banner
banner
banner