Heimild: Reuters
UEFA hefur staðfest að Nicola Rizzoli muni dæma úrslitaleik Meistaradeildarinnar á milli FC Bayern og Borussia Dortmund.
Leikurinn fer fram á Wembley næstkomandi laugardagskvöld.
Hinn 41 árs gamli Rizzoli dæmdi úrslitaleik Evrópudeildarinnar árið 2007 og þá dæmdi hann á EM í Póllandi og Úkraínu í fyrra.
Leikurinn fer fram á Wembley næstkomandi laugardagskvöld.
Hinn 41 árs gamli Rizzoli dæmdi úrslitaleik Evrópudeildarinnar árið 2007 og þá dæmdi hann á EM í Póllandi og Úkraínu í fyrra.
Ítalanum til aðstoðar í leiknum verða landar hans Renato Faverani, Andrea Stefani, Gianluca Rocchi og Paolo Tagliavento.
Damir Skomina frá Slóveníu mun síðan vera fjórði dómari.



