Heimild: Inside Spanish Football
Luis Felipe Scolari, landsliðsþjálfari Brasilíu, sagði eftir fund sinn við Sandro Rosell, forseta Barcelona, að Neymar muni slá í gegn sem leikmaður Börsunga.
Barcelona er talið vera búið að ná samkomulagi um kaup á 45% hlut í Neymar en Real Madrid er einnig reiðubúið að bjóða mikinn pening í leikmanninn, rétt eins og Bayern Munchen undir stjórn Pep Guardiola.

Scolari er nú búinn að opinbera að hann hitti forseta Barcelona til að tala um framtíð Neymar og er þetta augljóst merki um að Neymar sé líklegast á leið til Katalóníu.
,,Hann er fyrirmyndaríþróttamaður og fordæmi sem á að fylgja," sagði Scolari í viðtali við Canal+.
,,Ég hef rætt við Sandro Rosell um hvernig Neymar hegðar sér á æfingasvæðinu og um persónuleika hans. Aðrir leikmenn ættu að fara að fordæmi hans.
,,Barcelona er augljóslega næst því að fá hann til sín. Hann væri stórkostlegur fyrir félagið, hann yrði goðsögn eins og Lionel Messi."