Mallorca 1 - 0 Real Betis
1-0 Tomar Hemed ('21)
1-0 Tomar Hemed ('21)
Mallorca lagði Real Betis í gríðarlega mikilvægum leik í spænsku efstu deildinni í kvöld þar sem Tomar Hemed skoraði eina mark leiksins.
Nú eru tvær umferðir eftir af spænsku deildinni og er Real Betis í harðri evrópudeildarbaráttu við Rayo Vallecano þó að Malaga sé í síðasta sætinu sem gefur þátttökurétt í Evrópudeildinni.
Malaga er í keppnisbanni í Evrópukeppnum og hefði Betis nánast getað tryggt sér næsta sæti fyrir neðan Malaga með sigri í dag, og er nú þremur stigum ofar en Vallecano.
Mallorca var þá í botnsæti deildarinnar fyrir þennan leik en eftir sigurinn er liðið aðeins þremur stigum frá öruggu sæti í deildinni og tveimur stigum frá umspilssæti.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |


