Hér að neðan má sjá síðasta úrvalslið tímabilsins í ítalska boltanum en lokaumferðin fór fram um helgina. Gleðin var við völd hjá AC Milan sem tryggði sér sæti í Meistaradeildinni en hér neðar má sjá lokastöðuna.
Angelo Da Costa [Sampdoria]
Sampdoria vann 3-2 sigur gegn Ítalíumeisturum Juventus. Da Costa hafði nóg að gera en sýndi góð viðbrögð og átti flottar vörslur.
Daniele Dessena [Cagliari]
Leysti stöðu hægri bakvarðar eins og hann hefði aldrei gert neitt annað.
Guglielmo Stendardo [Atalanta]
Skoraði með laglegum flugskalla í 2-2 jafntefli gegn Chievo.
Philippe Mexes [Milan]
Hélt þeim Roberto Vittielo og Innocent Emeghara niðri og var þar að auki öflugur í föstum leikatriðum.
Marcelo Estigarribia [Sampdoria]
Magnaður á vinstri vængnum og átti tvær stoðsendingar.
Lorenzo De Silvestri [Sampdoria]
Hætti aldrei að hlaupa og gerði varnarmönnum Juventus lífið leitt.
Giampiero Pinzi [Udinese]
Skoraði eftir aðeins 40 sekúndur.
Marquinho [Roma]
Frábær á miðjunni gegn Napoli.
Adem Ljajic [Fiorentina]
Lauk tímabilinu með þrennu sem kom Fiorentina næstum því í Meistaradeildina.
Cyril Thereau [Chievo]
Maður leiksins í 2-2 jafnteflinu gegn Atalanta.
Mattia Destro [Roma]
Ótrúlega vinnusamur og ógnandi í 2-1 sigrinum gegn Napoli.




