Skúli Jón Friðgeirsson, varnarmaður KR var að vonum sáttur eftir 3-1 sigur sinna manna gegn Fylki í dag. Skúli Jón skoraði annað mark KR í leiknum.
Lestu um leikinn: Fylkir 1 - 3 KR
„Ég er mjög sáttur við stigin en leikurinn hefði getað verið betri. Við höfum oft spilað betri knattspyrnu en stigin telja jafn mikið í dag og annars."
„Þetta var karakter og vinna. Við skoruðum góð mörk og vörnin hélt."
Skúli segir að KR vélin sé komin af stað.
„Já, hún er komin af stað. Ég var mjög ánægður með síðasta sigur. Nú fáum við karakters sigur."
Þrátt fyrir sigurinn segir Skúli þetta vera lélegasti leikur liðsins í sumar.
„Mér fannst þetta vera okkar sísti leikur í sumar."
Athugasemdir