Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 20. maí 2018 13:00
Ívan Guðjón Baldursson
Cazorla æfir með Villarreal í sumar
Mynd: Getty Images
Spænski miðjumaðurinn Santi Cazorla verður samningslaus í sumar eftir sex ár hjá Arsenal.

Cazorla var einn af bestu leikmönnum Arsenal á tíma sínum þar en meiðslavandræði settu strik í reikninginn og lék hann síðast fyrir félagið 19. október 2016.

Cazorla er 33 ára gamall og mun æfa með Villarreal á Spáni á undirbúningstímabilinu.

Cazorla lék fyrir Villarreal í sjö ár áður en hann fór til Malaga og svo Arsenal. Ef honum gengur vel á undirbúningstímabilinu fær hann eins árs samning hjá félaginu, með möguleika á árs framlengingu.

Villarreal endaði í 5. sæti spænsku deildarinnar og leikur í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í haust.
Athugasemdir
banner
banner