Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   sun 20. maí 2018 13:30
Ívan Guðjón Baldursson
Rudiger: Eden Hazard verður áfram
Mynd: Getty Images
Antonio Rudiger var maður leiksins er Chelsea lagði Manchester United að velli í úrslitaleik enska FA bikarsins í gær.

Þýski miðvörðurinn var frábær í leiknum sem Chelsea vann 1-0 þökk sé marki frá Eden Hazard. Félagarnir fóru saman í viðtal eftir leikinn.

Það eru miklir orðrómar í gangi um framtíð Hazard þar sem stór félög hafa áhuga á honum og vill Rudiger ekki missa liðsfélaga sinn.

„Eden Hazard verður eftir! Hann verður eftir... Eden Hazard verður eftir!" grínaðist Rudiger á BT Sport þegar Hazard var spurður út í framtíðina sína.

Hazard tók vel í grínið hjá Rudiger og sagði honum hvað þarf að gerast til að halda sér hjá félaginu.

„Ef Antonio Rudiger spilar svona vel í hverjum leik þá verð ég áfram. Ég lofa að ég verð áfram."
Athugasemdir
banner
banner
banner