Mjög vel mannað lið KH sigraði Ægi í eina leik föstudagskvöldsins síðasta í 3. deild karla.
KH hefur fengið sterka leikmenn til liðs við sig í vetur og ætlar Hlíðarendarliðið sér að vera í toppbaráttu í sumar eftir að hafa komið upp úr 4. deildinni í fyrra.
Einn af leikmönnunum sem liðið hefur fengið er Arnar Sveinn Geirsson sem spilaði nokkuð stórt hlutverk í Íslandsmeistaralið Vals í fyrra. Arnar var ekki lengi að láta til sín taka í kvöld, hann kom liðinu 1-0 yfir eftir 20 mínútna leik.
KH komst í 2-0 á 60. mínútu og nokkrum mínútum síðar gerði Ingólfur Sigurðsson algjörlega út um leikinn. Lokatölur 3-0 og er KH með fullt hús stiga eftir tvo leiki.

KH sinnir góðu starfi á samfélagsmiðlum en liðið hefur birt myndbönd af mörkunum sem liðið skoraði á föstudagskvöld.
Hér að neðan eru mörkin.
1⃣ mark leiksins gegn Ægi.
— KH (@KHlidarendi) May 19, 2018
▶️ Miðvörðurinn @arnarsveinn með snilldarskalla eftir aukaspyrnu frá @ingolfursig 🎉🎉🎉 pic.twitter.com/KyiI6LAe2o
2⃣ mark leiksins gegn Ægi.
— KH (@KHlidarendi) May 19, 2018
▶️ @EdvardD98 smellir boltanum fyrir markið í miðvörð Ægis og í markið! Vel gert! 🎉🎉🎉 pic.twitter.com/o3GWaFyigs
3⃣ mark leiksins gegn Ægi.
— KH (@KHlidarendi) May 19, 2018
▶️ Suðræn danssveifla í boði @ingolfursig og laglegt þríhyrningaspil við @EdvardD98 🎉🎉🎉 pic.twitter.com/utmp0sv7Nj
Athugasemdir