Zinedine Zidane telur sig vera í slæmum málum fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar þar sem lærisveinar hans í Real Madrid mæta Liverpool.
Zidane segist vera í slæmum málum því enginn leikmaður í hópnum hans er meiddur. Hann þarf því að skilja nokkra leikmenn hópsins eftir heima og er með valkvíða.
Zidane segist vera í slæmum málum því enginn leikmaður í hópnum hans er meiddur. Hann þarf því að skilja nokkra leikmenn hópsins eftir heima og er með valkvíða.
„Ég hef 24 leikmenn til að velja úr og er "fokked". Fyrirgefið, en ég gat ekki fundið betra orð til að lýsa þessu," sagði Zidane.
„Það verður erfiðast að skilja leikmenn eftir heima í Madríd, leikmenn sem spiluðu mikilvæga leiki í Meistaradeildinni á tímabilinu."
Úrslitaleikurinn verður spilaður í Kænugarði næsta laugardag. Liverpool vann Roma 7-6 í undanúrslitum á meðan Real Madrid lagði Bayern 4-2.
Athugasemdir