Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fim 20. júní 2013 06:00
Hafliði Breiðfjörð
26. Pollamót Þórs og Icelandair
Mynd: Pollamót
Pollamót Þór og Icelandair verður haldið daganna 5. og 6. júlí á Þórsvellinum í 26. skipti. Keppt verður í þremur flokkum karla 30 ára og eldri taka þátt í Polladeild, 40 ára og eldri í Lávarðadeild og 45 ára og eldri reyna með sér í Öldungadeild.

Hjá konunum verður keppt í tveimur flokkum 20 ára og eldri etja kappi í Skvísudeild og 30 ára og eldri í Ljónynjudeild. Spilað verður á föstudag og laugardag.

Stefnt er að því að mótið verði sannkölluð fjölskylduhátíð, leiktæki verða á svæðinu fyrir börn allan tímann og á föstudagskvöldið verður grillveisla þar sem hægt verður að kaupa veitingar gegn vægu gjaldi. Meðal skemmtiatriða er stórsöngvarinn og Eurovision farinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson sem mun trylla lýðinn eins og honum einum er lagið.

Þá mun Þórsbandið halda uppi stuði á svæðinu. Mikið um dýrðir, flott skemmtiatriði á mótssvæðinu og fullt af fótbolta, taumlaus gleði og gaman, já sannkölluð
fjölskyldustemmning.

Allar upplýsingar má finna á heimasíðu mótsins, www.pollamot.is sem og á facebooksíðu Pollamótsins einnig hjá Eið Arnari Pálmasyni mótsstjóra í síma 896-6782.
Slapp
banner
banner