Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 20. júní 2013 11:24
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Alan Shearer: Fólk hlær að Newcastle
Alan Shearer, fyrrum framherji Newcastle, skilur ekkert í því að félagið hafi ákveðið að ráða Joe Kinnear sem yfirmann knattspyrnumála.

Stuðningsmenn Newcastle eru æfir yfir ráðningu Kinnear og Shearer telur að það sé verið að gera lítið úr knattspyrnustjóranum Alan Pardew.

,,Öll félög eru að skipuleggja næsta tímabil á meðan það er búið að gera lítið úr stjóra Newcastle. Fólk er að hlæja að félaginu sem ég styð. Ég er brjálaður yfir því," sagði Shearer.

,,Það er ekki hægt að meðhöndla mann svona einungis 12 mánuðium eftir að hann var kosinn stjóri ársins fyrir að enda í fimmta sæti í úrvalsdeildinni með Newcastle."

,,Þögn hans eftir ráðningu Kinnear segir allt. Hvað getur hann samt sagt? Hann er í ólíðandi stöðu. Hann getur ekki komið fram og hellt sér yfir vinnuveitendur sína en á sama tíma er hann í stöðu sem enginn stjóri væri ánægður með."

,,Ég er með eina spurningu fyrir Joe Kinnear: Myndir þú líða þetta ef þú værir stjóri?"

,,Að einhver komi fram í fjölmiðlum og segist ætla að taka við sem yfirmaður fótboltamála áður en félagið segir nokkuð um það. Að einhver komi inn og stýri því hvaða leikmenn koma og fara."

Slapp
banner
banner
banner