Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 20. júní 2013 11:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Andy Carroll stefnir á HM á næsta ári
Andy Carroll stefnir á að vinna sér sæti í enska landsliðshópnum fyrir HM á næsta ári.

Carroll gekk í gær í raðir West Ham og hann vonast til að það auki möguleika sína á að spila og sanna sig fyrir Roy Hodgson landsliðsþjálfara Englendinga.

,,Markmið mitt er að vera heill, skora mörk og standa mig í hverri viku," sagði Carroll.

,,Ef ég geri það þá mun ég vonandi komast í enska landsliðið. Það er alltaf mikilvægt að spila fótbolta fyrir landsliðið. Ef ég spila vel og næ að halda mér heilum þá mun ég spila í hverri viku. Ef það gerist þá mun landsliðssætið koma."

,,Sam (Allardyce) er frábær stjóri. Það er alltaf gott þegar þú ert með einhvern sem stendur við bakið á þér. Hann gefur mér sjálfstraust til að sýna hvað í mér býr."

Slapp
banner
banner
banner