Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fim 20. júní 2013 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Football-Italia 
Giaccherini: Verðskulduðum ekki sigurinn
Emanuele Giaccherini var í byrjunarliði Ítala er liðið lagði landslið Japans í æsispennandi sjö marka leik.

Giaccherini sagði við fréttamenn eftir leikinn að hann teldi sig og samherja sína ekki hafa verið nógu góða til að vinna.

,,Ég held að vendipunkturinn hafi verið markið hans Daniele De Rossi," sagði Giaccherini.

,,Hefðum við farið í leikhlé tveimur mörkum undir þá hefði þetta verið mun erfiðari leikur sálfræðilega.

,,Við kvöldumst mikið undan pressu þeirra og ég verð að hrósa þeim fyrir stórkostlega frammistöðu, þeir eru með virkilega gott landslið,

,,Var sigurinn verðskuldaður? Í fullum heiðarleika, nei, en þetta er Ítalía og Ítalir vita hvernig það er að berjast upp á líf og dauða til að ná góðum úrslitum í fótbolta.

,,Heppni, þrjóska og ákveðni okkar skiluðu dýrmætum sigri. Hitinn var vandamál, sérstaklega rakastigið, okkur fannst erfitt að anda."

Slapp
banner