Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 20. júní 2013 12:09
Magnús Már Einarsson
Heimild: Heimasíða Keflavíkur 
Gunnar Oddsson hættur hjá Keflavík
Gunnar Oddsson.
Gunnar Oddsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Oddsson hefur ákveðið að hætta sem aðstoðarþjálfari hjá Keflavík.

Zoran Ljubicic, þjálfara Keflvíkinga, rekinn í gær og Kristján Guðmundsson ráðinn í hans stað.

Gunnar var aðstoðarmaður Willums Þórs Þórssonar með Keflavík síðari hluta sumars 2011 og hann hefur einnig verið aðstoðarþjálfari með Zoran frá því haustið 2011.

,,Gunnar skilur við Keflavík í sátt og telur eðlilegt að með nýjum þjálfara komi nýr aðstoðarmaður," segir í frétt á heimasíðu Keflavíkur.

,,Knattspyrnudeildin þakkar Gunnari fyrir hans framlag til Keflavíkur og óskar honum góðs gengi í því sem hann tekur sér fyrir hendur í framtíðinni."
Slapp
banner
banner