Fyrrum sænski landsliðsmaðurinn Henrik Larsson tók fram skóna í gær og spilaði með liði Högaborg í sænsku 4. deildinni.
Vegna meiðsla í framlínunni ákvað hinn 41 árs gamli Larsson að spila með Högaborg en sonur hans er á mála hjá liðinu.
Vegna meiðsla í framlínunni ákvað hinn 41 árs gamli Larsson að spila með Högaborg en sonur hans er á mála hjá liðinu.
Larsson kom inn á sem varamaður þegar tíu mínútur voru eftir í 4-2 sigri á Harlyckans í gær.
Sonur hans, hinn 15 ára gamli Jordan, skoraði eitt af mörkum Högaborg í leiknum.
Larsson lagði skóna á hilluna árið 2009 en hann þjálfaði í kjölfarið Landskrona áður en hann hætti störfum síðastliðið haust.



