Hin hliðin er farin aftur af stað hér á Fótbolta.net. Af og til sjáum við nýjar hliðar á fótboltafólki landsins. Emil Atlason er ungur sóknarmaður sem KR fékk til sín frá FH í fyrra. Á sínu fyrsta ári í Pepsi-deildinni skoraði hann fimm mörk.
Fullt nafn: Emil Atlason
Gælunafn sem þú þolir ekki: Emsla
Aldur: 19
Giftur / sambúð: Single
Börn: ..
Kvöldmatur í gær: Brauð i grilli :/
Uppáhalds matsölustaður: Saffran
Hvernig bíl áttu: Golf
Besti sjónvarpsþáttur: Psych
Uppáhalds tónlistamaður:Usher
Uppáhalds skemmtistaður: Danski og B5
Frægasti vinur þinn á Facebook: Ալլա Զաքարյան
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Þú ert ooooogeðslegur (Styrmir Vill)
Hefurðu tekið dýfu innan teigs: já einu sinni eða tvisvar
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Fjölni
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Jonathan Williams
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Hólmbert dragqueen
Sætasti sigurinn: Þegar eg var í FH og við unnum 6-5 á móti Kef, Gummi moso með sigurmarkið
Mestu vonbrigðin: Að tapa á móti KR í úrslitum bikars með 2 flokki FH
Uppáhalds lið í enska: Liverpool
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Líklega myndi ég velja hann vin minn Kristján Gauta
Efnilegasti knattspyrnumaður landsins: Andri Rafn Yeoman
Fallegasti knattspyrnumaðurinn í deildinni: Björn Jónsson
Fallegasta knattspyrnukonan: Björk Gunnarsdóttir
Besti íþróttalýsandinn: Gummi Ben
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Nokkur nöfn koma i huga, meðal annars Mummi og Dabbi Einars
Uppáhalds staður á Íslandi: Setbergið
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Þegar ég var í FH og ég og annar liðsfélagi vorum búnir að vera að rífast við hvorn annan. Svo i hálfleik segir hann við mig: „Emil eigum við ekki bara að vera vinir?‘‘ og ég missti hláturinn upp úr mér og bókstaflega dó úr hlátri.
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: Á móti Stjörnunni í fyrrasumar
Besta við að æfa fótbolta: Sigurtilfinningin
Hvenær vaknarðu á daginn: Fer eftir því hvenær ég fer að sofa
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: NBA
Hvenær borgaðir þú þig síðast inn á knattspyrnuleik: Á landsleik í fyrra
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: F50 AdiZero
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Íslensku, bókfærslu, þýsku, náttúrufræði, viðskiptafræði, sögu... ég gæti verið að gleyma einhverjum áföngum..
Vandræðalegasta augnablik: Þegar fólk heilsar manni og ég er alla umræðuna að átta mig á hvern ég er að tala við
Skilaboð til Lars Lagerback: Sæll ven
Viltu opinbera leyndarmál að lokum: Gary martin er með herpes




