Heimild: Heimasíða KSÍ
KSÍ hefur farið þess á leit við aðildarfélög sín að þau hafi mínútu þögn fyrir næstu leiki í meistaraflokki karla og kvenna, hvort sem næsti leikur er í bikarkeppni eða Íslandsmóti til að minnast Ólafs Rafnssonar, Forseta Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.
Ólafur varð bráðkvaddur í Sviss í gær þar sem hann sótti fund í miðstjórn FIBA - Alþjóða körfuknattleikssambandsins.
Ólafur varð bráðkvaddur í Sviss í gær þar sem hann sótti fund í miðstjórn FIBA - Alþjóða körfuknattleikssambandsins.
,,Knattspyrnuhreyfingin harmar fráfall góðs drengs og vottar fjölskyldu Ólafs alla sína samúð," segir í frétt á heimasíðu KSÍ.
Auk þess að hafa mínútu þögn fyrir leiki eru lið hvött til að leika með sorgarbönd ef þau eiga þess kost.
A landslið kvenna mætir Dönum í vináttuleik í Viborg í dag og mun leika með sorgarbönd.
Fótbolti.net sendir fjölskyldu Ólafs og vinum dýpstu samúðarkveðjur.



