Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fim 20. júní 2013 07:52
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Football-Italia 
Prandelli: Áttum skilið að vinna gegn Mexíkó
Cesare Prandelli viðurkennir að leikurinn gegn Japan hafi verið gríðarlega erfiður fyrir ítalska landsliðið en er mjög ánægður með reynsluna sem sínir menn fá úr leiknum.

Prandelli segir að þetta hafi verið mjög erfiður leikur og að sínir menn hafi lent í alskyns vandræðum.

,,Við áttum skilið að vinna gegn Mexíkó, en við áttum í gríðarlegum erfiðleikum í kvöld," sagði Prandelli við fréttamenn.

Prandelli tók Alberto Aquilani af velli eftir tæpan hálftíma leik en Sebastian Giovinco kom inn í staðinn. Skömmu eftir skiptinguna tvöfaldar Japan forskot sitt en Giovinco átti eftir að skora sigurmark leiksins á 86. mínútu.

,,Við vorum tveimur mörkum yfir og við vissum ekkert hvað við áttum að gera fyrstu 25 mínúturnar.

,,Við höfðum ekki orku í neitt þarna, rakinn er of mikill þannig að við spiluðum passívt og spöruðum orku fyrir réttu stundirnar.

,,Mér fannst gaman að sjá þetta landslið þjást og berjast fyrir góðum úrslitum sama hvað það kostaði. Við hefðum getað sætt okkur við jafntefli en í staðinn héldum við áfram að berjast og það skilaði sér.

,,Ég þarf að smala strákunum aftur saman og ég hreinlega veit ekki hvernig við munum standa okkur gegn Brasilíu. Rakinn og hitinn eru óbærilegir.

Slapp
banner
banner
banner