Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 20. júní 2013 09:45
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Suarez til Napoli?
Powerade
Þá er komið að helsta slúðrinu úr enska boltanum í dag en pakkinn er í styttri kantinum að þessu sinni.



Rafael Benítez, þjálfari Napoli, vill fá Luis Suarez framherja Liverpool til að fylla skarð Edinson Cavani sem er á förum. (Daily Mirror)

Juventus hefur áhuga á Aleksandar Kolarov og Carlos Tevez leikmönnum Manchester City. (Daily Mail)

Tevez er nálægt því að ganga í raðir AC Milan á tíu milljónir punda. (Daily Star)

Umboðsmaður Hulk hefur gefið í skyn að leikmaðurinn sé mögulega á förum frá Zenit St. Pétursborg en Chelsea, PSG og Monaco hafa áhuga á Brasilíumanninum. (Talksport)

Steve Bruce, stjóri Hull, vill fá Curtis Davies varnarmann Birmingham á 2,25 milljónir punda. Hann hefur einnig áhuga á Kasper Schmeichel markverði Leicester. (Telegraph)

Bruce hefur ákveðið að bjóða Carlton Cole samning en hann er á förum frá West Ham. (The Sun)

Roberto Martinez, stjóri Everton, vill fá Nathan Redmond kantmann Birmingham. (The Sun)

Jay Bothroyd, framherji QPR, vill yfirgefa herbúðir félagsins. (Daily Star)

Cardiff ætlar að bjóða átta milljónir punda í Tom Ince kantmann Blackpool en Liverpool á möguleika á að jafna það tilboð. (Daily Mail)
Slapp
banner