Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 20. júní 2013 00:18
Brynjar Ingi Erluson
Umfjöllun: Endurkoma Magna dugði ekki til
Úr leiknum í dag.
Úr leiknum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Magnamenn fagna.
Magnamenn fagna.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Grótta 3 - 2 Magni
1-0 Pétur Theodór Árnason ('27 )
2-0 Jónmundur Grétarsson ('52 )
2-1 Hreggviður Heiðberg Gunnarsson ('73 )
2-2 Anton Ástvaldsson ('79, sjálfsmark )
3-2 Örlygur Þór Helgason ('81, sjálfsmark )
Rautt spjald: Agnar Darri Sverrisson ('63, Magni )

Grótta komst í fyrsta sinn í 8-liða úrslit bikarsins í sögu félagsins með því að leggja Magna að velli með þremur mörkum gegn tveimur í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins í kvöld, en dramatíkin náði hámarki undir lokin.

Heimamenn byrjuðu leikinn betur eins og búist var við. Jónmundur Grétarsson átti fyrsta alvöru færi leiksins, en þá átti Kristófer Þór Magnússon fyrirgjöf sem Jónmundur skallaði rétt yfir markið.

Magnamenn fengu sitt fyrsta færi stuttu síðar er liðið fékk aukaspyrnu, en Aksentije Milisic átti þá aukaspyrnu sem rataði á kollinn á Hreggvið Heiðberg Gunnarsson en boltinn yfir markið.

Það var tímaspursmál hvenær fyrsta mark Gróttu kæmi, en það kom á 27. mínútu er Garðar Guðnason átti fyrirgjöf frá hægri. Pétur Theodór Árnason var mættur í teiginn og kláraði mjög vel.

Nokkrum mínútum síðar átti Jens Elvar Sævarsson dauðafæri. Pétur átti þá fyrirgjöf sem rataði beint á kollinn á Jens, sem átti að skora, en skalli hans fór beint á Hjört í markinu.

Staðan í hálfleik því 1-0 Gróttu í vil. Jónmundur bætti við öðru marki fyrir Gróttu í byrjun seinni hálfleiks. Garðar átti þá aftur fyrirgjöf frá hægri þar sem boltinn lak í gegnum Hjört og á Jónmund sem skoraði í autt markið.

Pétur fékk ákjósanlegt skallafæri stuttu seinna, en honum brást bogalistin. Agnar Darri Sverrisson var rekinn af velli í liði Magna á 63. mínútu er hann fékk sitt annað gula spjald.

Ekki voru allir sammála spjaldinu, en Agnar hafði verið nokkuð grimmur inni á vellinum frá því hann fékk fyrra gula spjaldið í fyrri hálfleik. Seinna gula spjaldið var þó afar umdeilt þar sem hann kom varla við manninn en Valgeir Valgeirsson sendi hann í sturtu.

Jens Elvar átti dauðafæri stuttu eftir rauða spjaldið er hann átti skalla sem Hjörtur varði í stöng.

Gestirnir urðu sterkari í kjölfarið og minnkuðu muninn á 73. mínútu. Ingvar Gylfason átti þá fyrirgjöf frá hægri sem Hreggviður skallaði í netið. Magnamenn jöfnuðu þá leikinn þunga sókn, en Anton Ástvaldsson varð þá fyrir því óláni að skora í eigið net.

Hreggviður átti þá skot sem Anton ætlaði að hreinsa en í stað þess þrumaði hann knettinum í netið. Magnamenn á ótrúlegan hátt komnir til baka, en þeir misstu þetta þó á næstu mínútu niður.

Pétur Theodór átti fyrirgjöf frá hægri mínútu síðar sem Örlygur Þór Helgason komst inn í, hann vildi þó óska þess að það hefði ekki gerst þar sem boltinn lak af honum og í netið.

Lokatölur á Gróttuvelli því 3-2, heimamönnum í vil. Þeir eru því komnir í pottinn, en það verður dregið á föstudag. Magnamenn ljúka því bikarævintýri sínu, en fara þó stoltir enda komst liðið í 16-liða úrslit, spilandi í 3. deild.

Slapp
banner