Gunnar Stígur Reynisson skrifar frá Höfn í Hornafirði
Sindri 0 - 3 Fylkir
0-1 Viðar Örn Kjartansson ('50)
0-2 Heiðar Geir Júlíusson ('56)
0-3 Árni Freyr Guðnason ('91)
0-1 Viðar Örn Kjartansson ('50)
0-2 Heiðar Geir Júlíusson ('56)
0-3 Árni Freyr Guðnason ('91)
Leikur Sindra og Fylkis í 16. liða úrslitum Borgunarbikarsins fór fram á Sindravöllum í fínu knattspyrnuveðri.
Áður en leikurinn hófst og meðan hann var í gangi gekk söfnunarbaukur meðal áhorfenda leiksins og átti peningurinn sem safnaðist að fara í ferðasjóð Fylkis en mikil umræða hefur verið um ferðlag Fylkis til Hafnar en leikmenn liðsins þurftu sjálfur að punga út 10.000 krónum vegna erfiðs reksturs knattspyrnudeildar Fylkis.
En nóg með það því það gengu teinréttir Fylkismenn til leiks í glænýjum og vel pressuðum bláum varabúningum. Sindramenn hræddust þó ekki bláa litinn, hvað þá Bónusgrísinn á búningunum sem starði brosandi á þá. Þegar leikurinn hófst var það augljóst að Sindramenn ætluðu að selja sig dýrt og komu ákveðnir til leiks. Þeir spiluðu þétta vörn og pressuðu vel á Fylkismenn. Á 16. mínútu kom góð stungusending inn fyrir vörn Fylkismanna en Bjarni Þórður markmaður Fylkis var hálfu skrefi á undan Hilmari Þór í boltann og hreinsaði hann í burtu.
Leikmenn Fylkis leituðu mikið í reynslu Tryggva Guðmundssonar og má segja að í fyrri hálfleik hafi allt spil fram á við farið í gegnum Tryggva enda var hann duglegur að hlaupa í svæði og fá boltann í lappirnar. Um miðjan fyrri hálfleik var Viðar Örn Kjartansson nálægt því að skora er hann sendi boltann fram hjá Maciej Majewski markmanni Sindra en því miður fyrir Viðar þá fór hann einnig rétt fram hjá stönginni.
Það mátti vart sjá allan fyrri hálfleikinn hvort liðið væri tveimur deildum ofar og þegar líða tók á hálfleikinn fór að bera á pirringi hjá Fylkismönnum. Undir lok hálfleiksins voru Fylkismenn þó óheppnir að komast ekki yfir í tvígang en góður markvörður Sindra varði vel og hélt sínum mönnum inní leiknum. Í uppbótartíma voru Fylkismenn heppnir og um leið Sindramenn óheppnir að fá ekki víti þegar boltinn fór augljóslega í hönd leikmanns Fylkis. Ekkert var dæmt og gengu leikmenn því til búningsherbegja í stöðinni 0 - 0.
Ásmundur þjálfari Fylkis náði greinilega að róa sína menn niður í hálfleiknum og skipuleggja spilið sinna manna betur því Fylkir komu mjög sterkir til leiks í síðari hálfleik. Það tók þá ekki nema 5 mínútur að skora fyrsta mark leiksins. Þar var á ferð Viðar Örn en hann fékk boltann í vítateig Sindra og náði skoti á nærstöngina án þess að Majewski næði að klófesta boltann,staðan orðin 0 - 1. Við markið urðu mikil læti en leikmenn og þjálfari Sindra fannst að brotið hafði verið á leikmanni þeirra fyrir framan þeirra eigin vítateig.
Sex mínútum síðar hefðu Fylkismenn hæglega geta skorað annað mark þegar Tryggvi Guðmundsson komst einn á móti Majewski en hann gerði sig breiðan og varði skot Tryggva vel. Hann gat þó engum vörnum komið við tveimur mínútum síðar þegar Heiðar Geir Júlíusson skoraði eftir hornspyrnu Fylkismanna en boltinn virtist hafa haft viðkomu í einum Sindramanni og breytt örlítið um stefnu.
Stuttu síðar komst Tryggvi aftur einn í gegn en þá kom Majewski Sindra enn til bjargar og varði vel. Lítið markvert gerðist í leiknum eftir þetta færi Tryggva og virtust liðin vera búin að sætta sig við orðin hlut en það var Árni Freyr Guðnason ekki. Þegar komið var fram yfir venjulegan leiktíma nýtti Árni Freyr sér vel mistök Sindramanna í vörninni og sem varð til þess að hann sendi boltann auðveldlega í mark Sindra.
Lokastaðan varð þriggja marka sigur Fylkis og geta þeir flogið sáttir heim.
Vonbrigði ferðarinnar hjá Fylkismönnum voru þó klárlega að hafa ekki tíma til að frá gómsæta humarmáltíð þar sem flugvélin beið þeirra til að flytja þá aftur til höfuðborgarinnar. En það koma tímar og vonandi þegar þeir koma næst hafi þeir nægan tíma þó það væri ekki nema bara fyrir einn humarhala.


