Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 20. júní 2017 23:36
Magnús Valur Böðvarsson
4. deild: Hvíti Riddarinn og Árborg koma á aukinni spennu í riðlum sínum
Hvíti Riddarinn og Kría eru í harðri baráttu um toppsætin í A-riðlinum
Hvíti Riddarinn og Kría eru í harðri baráttu um toppsætin í A-riðlinum
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Ingimar Helgi Finnsson skoraði fyrir Árborg í kvöld
Ingimar Helgi Finnsson skoraði fyrir Árborg í kvöld
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Þrír leikir fóru fram í 4.deild karla í kvöld. Í A - riðli vann Hvíti Riddarinn lífsnauðsynlega sigur á Hamri í miklum spennuleik og þá vann GG sinn fyrsta sigur þegar þeir sóttu Snæfellinga heim.

Í C riðlinum vann Árborg öruggan sigur á Úlfunum og gæti toppbaráttan orðið frábær í kjölfarið.

A-riðill
Toppbaráttan í A-riðli er að harðna eftir að Hvíti Riddarinn lagði lið Hamars í kvöld. Fjögur lið virðast ætla að berjast um sætin tvö í úrslitakeppninni en auk Hvíta og Hamars eru Kórdrengir og Kría inní baráttunni. Þá vann GG sinn fyrsta sigur þegar þeir unnu Snæfellinga fyrir Vestan.

Hvíti Riddarinn 1 - 0 Hamar
1-0 Davíð Einarsson (35')
Rauð spjöld Kristján Sigurðsson (80' Hvíti Riddarinn), Davíð Einarsson (89' Hvíti Riddarinn)

Snæfell/UDN 1 - 7 GG
0-1 Ármann Örn Vilbergsson (23')
0-2 Ármann Örn Vilbergsson (42')
0-3 Viktor Bergmann Brynjarsson (51')
0-4 Viktor Bergmann Brynjarsson (59')
1-4 Sindri Geir Sigurðsson (59')
1-5 Gylfi Örn Öfjörð (65')
1-6 Hallgrímur Jónsson (72')
1-7 Andri Páll Sigurðsson (88')

C - riðill
Allt gæti einnig farið upp í háaloft í toppbaráttu C riðils. Árborg vann gríðarlega öruggan sigur á Úlfunum en toppbaráttan þar gæti orðið mögnuð. Léttir, Ýmir, Kormákur/Hvöt Árborg og Skallagrímur eru öll stutt frá hvor öðru í stigum og því verður spennandi að fylgjast með gangi mála í næstu leikjum.

Úlfarnir 0 - 4 Árborg
0-1 Árni Páll Hafþórsson (25')
0-2 Magnús Helgi Sigurðsson (78')
0-3 Ingimar Helgi Finnsson (82')
0-4 Ingvi Rafn Óskarsson (86')

Athugasemdir
banner
banner
banner