Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 20. júní 2017 19:30
Þórarinn Jónas Ásgeirsson
Mangala í viðræðum við Lyon
Eliaquim Mangala í baráttunni í leik með Valencia í vetur
Eliaquim Mangala í baráttunni í leik með Valencia í vetur
Mynd: Getty Images
Eliaquim Mangala, varnarmaður Manchester City er í viðræðum við franska liðið Lyon um að ganga til liðs við félagið í sumar.

Franski landsliðsmaðurinn, sem kom til City frá Porto árið 2014 fyrir 42 milljónir punda, var á láni hjá Valencia á Spáni á yfirstandandi leiktíð en spænska liðið ákvað ekki að nýta sér ákvæði í lánsamningum sem gerði þeim kleift að kaupa hann.

City eru sagðir vilja fá 18 milljónir punda fyrir Frakkann knáa en hann á ennþá tvö ár eftir af samningi sínum við Manchester liðið. Lyon eru sagðir vilja fá Mangala á láni til að byrja með en City vill selja hann til þess að jafna út það sem þeir hafa nú þegar eytt sjálfir í leikmenn núna í byrjun sumars.

Newcastle eru einnig sagðir hafa áhuga á Mangala en sögur segja að hann hafi farið til Lyon í dag til þess að hefja viðræður.



Athugasemdir
banner
banner