Það vakti athygli eftir mark Alfreðs Finnbogasonar gegn Argentínu síðasta laugardag, að Alfreð hljóp að sjónvarpsmyndavél við hornfánannn og öskraði í linsuna.
Hinir og þessir hafa reynt að komast að því hvað Alfreð sagði í raun og veru.
Alfreð var spurður að því á fréttamannafundi Íslands í morgun.
Hinir og þessir hafa reynt að komast að því hvað Alfreð sagði í raun og veru.
Alfreð var spurður að því á fréttamannafundi Íslands í morgun.
„Ég get ekki svarað því. Ég bullaði bara eitthvað á spænsku og ekkert sem meikar sense. Myndavélin beið mín og mér fannst ég þurfa að segja eitthvað við hana en það kom ekkert að viti," sagði Alfreð og hló.
Hvað sagði Alfreð fyrir framan myndavélina þegar hann fagnaði gegn Argentínu? #fotboltinet pic.twitter.com/2BAGYM4k4N
— Fotbolti.net (@Fotboltinet) June 20, 2018
Athugasemdir