FH heimsótti Val á Hlíðarenda í toppslag í Pepsí-deildinni í kvöld og töpuðu 2-1. Davíð Þór Viðarsson fyrirliði FH var vonsvikinn í leikslok og sagði liðið ekki spila nógu vel.
Lestu um leikinn: Valur 2 - 1 FH
„Ekki nógu vel við töpuðum leiknum. Við svöruðum því ágætlega, við skoruðum, við getum ekki kvartað yfir því en við getum svo kvartað yfir að fá á okkur aulamark."
Davíð sagði að þeir hefðu ekki mikið pælt í leik Valsmanna og einbeitt sér að sínum leik en það vantaði uppá að skapa færi í leiknum.
„Þeir bökkuðu í vörn og sóttu hratt á okkur, við vorum ekkert mikið að spá í hvað þeir væru að gera, við ætluðum að spila okkar leik sem við gerðum ágætlega en við náðum ekki að skapa okkur mörg færi.
Aðspurður hvort það væri áhyggjuefni hversu margir sóknarmenn voru inná án þess að ná að skapa almennileg færi sagði Davíð að allt liðið bæri ábyrgð á því.
„Það eru ekki bara sóknarmennirnir, við höldum boltanum mjög vel á okkar vallarhelmingi en á síðasta þriðjungnum verða sendingar, hlaup og fyrirgjafir að vera betri."
Athugasemdir