Ejub Purisevic, þjálfari Víkings Ólafsvíkur var ánægður með sigur sinna manna á Þór í kvöld en leikið var á Akureyri.
Lestu um leikinn: Þór 0 - 2 Víkingur Ó.
„Ég er bara mjög ánægður með að vinna gott lið í skemmtilegum leik. Ég er mjög sáttur í dag," sagði Ejub.
Ejub fannst Víkingur vera betri í leiknum í dag.
„Mér fannst við vera allan tímann líklegri. Við vorum að halda haus og halda einbeitningu og mér fannst þeir sem komu inn á gera vel."
Vafasöm atriði áttu sér stað í leiknum í kvöld en Víkingur vildu fá víti og þá vildu Þórsarar meina að Pape, leikmaður Víkings hefði slegið leikmann Þórs.
„Maður er örugglega hlutdrægur en mér finnst þetta pjúra vítaspyrnu en hér í þessu tilviki þá var einhver að ýta í bakið á Pape. Það var eitthvað, hvort hann hafi slegið hann veit ég ekki."
Víkingur er með sigrinum kominn í 3. sæti deildarinnar og aðeins tveimur stigum frá Pepsi-deildar sæti. Ejub er hins vegar ekkert að stressa sig á því og segir að stefnan sé ekkert endilega sett á Pepsi-deildina.
„Nei ekkert eins og er. En ef tækifærið gefst þá munum við auðvitað reyna það."
Athugasemdir