Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 20. júní 2018 12:46
Ívan Guðjón Baldursson
Fabian Ruiz á leið til Napoli fyrir 30 milljónir
Mynd: Getty Images
Spænski miðjumaðurinn Fabian Ruiz staðfesti í viðtali að hann sé á leið til Napoli fyrir 30 milljónir evra.

Fabian er 22 ára og var í lykilhlutverki hjá Real Betis á síðasta tímabili. Hann skrifar undir fimm ára samning við ítalska félagið.

„Ég get staðfest að ég er á leið til Napoli, en ég veit ekki hvenær félagið mun staðfesta það," sagði Fabian við ítalska fjölmiðla.

Fabian er samningsbundinn Betis til 2023 og þarf Napoli að virkja söluákvæði í samningi hans til að ganga frá kaupunum.

Fabian er talinn vera mjög efnilegur og á leiki að baki fyrir yngri landslið Spánar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner