Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 20. júní 2018 07:27
Arnar Daði Arnarsson
Frederik bað Rúrik um að giftast sér
Icelandair
Frederik Scrham á æfingu landsliðsins.
Frederik Scrham á æfingu landsliðsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hann var ekkert að skafa af því, hann Frederik Schram einn af markvörðum íslenska landsliðsins þegar hann skrifaði athugasemd við nýjustu mynd Rúriks Gíslasonar á Instagram í gærkvöldi.

„Omg omg omg omg! Rurik you are so hot cant believe it. Will you marry me please? If not please answer my dm and follow me back. rurik i love you so much i am crying and i miss you you are cute and you are handsome," skrifaði Frederik undir mynd Rúriks.

Ef við þýðum þetta yfir á íslensku þá er Frederik einfaldlega að biðja Rúrik um að giftast sér. Þar tjáir hann ást sína á honum, þar sem segist Frederik vera grátandi og saknar hans mjög mikið.

Það verður spennandi að sjá hvort Frederik fái svar frá Rúrik og hvort sem svarið verði jákvætt eða neikvætt, þá vonandi að það hafi ekki nokkur áhrif á stemninguna í íslenska landsliðinu.

Hægt er að sjá bæði myndina af Rúrik og athugasemdina frá Frederik hér að neðan.

Strákarnir í landsliðinu hafa verið duglegir að koma með góðlátlegt grín í garð Rúriks eftir að Instagram fylgjendum hans, aðallega kvenkyns, fór að fjölga svakalega eftir innkomu hans gegn Argentínu.

Sjá einnig:
Rúrik veit hvað allir eru hrifnir af honum


Athugasemdir
banner
banner
banner