Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
   mið 20. júní 2018 22:02
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Lárus Orri: Ætla ekki að kommenta einu sinni á dómara í sumar
Lárus Orri var ekki ánægður með spilamennsku sinna manna í kvöld
Lárus Orri var ekki ánægður með spilamennsku sinna manna í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Við vorum bara ekki nógu góðir," voru fyrstu viðbrögð Lárus Orra Sigurðssonar, þjálfara Þórs eftir tap sinna manna gegn Víking Ó.

Lestu um leikinn: Þór 0 -  2 Víkingur Ó.

„Við vorum að spila á móti hörku góðu liði Víkings Ó. og mættum bara ekki klárir til leiks. Líklega einn af tveimur af slökustu leikjum okkar í sumar."

Mörk Víkings komu með stuttu millibili í seinni hálfleik.

„Seinna markið kemur úr mjög flotti skoti úr teig. Fyrsta markið þeirra var líklega fyrsta eða annað skotið þeirra á markið."

Einhver vafasöm atvik áttu sér stað í leiknum og í einu þeirra virðist Pape Mamadou Faye slá til leikmanns Þórs.

„Sko, í fyrra var ég mjög duglegur að gagnrýna dómara og reyndi að beina gagnrýni minni til KSÍ til að reyna hjálpa dómurum í þessu. Í ár ætla ég ekki að kommenta á dómara einu sinni í allt sumar. En ég myndi samt vilja að þið blaðamenn mynduð krítisera dómara og skoða viss atvik í leiknum og skrifa um það."
Athugasemdir
banner
banner