Portúgal var rétt í þessu að leggja Marokkó að velli þökk sé laglegu skallamarki frá Cristiano Ronaldo.
Í leiknum mættust tveir reyndir varnarjaxlar, hinn 35 ára gamli Pepe sem leikur fyrir Besiktas og Medhi Benatia, leikmaður Juventus.
Pepe er þekktur fyrir að vera ekki sá heiðarlegasti í bransanum, ljót brot, miklar ýkjur og leikaraskap.
Hér fyrir neðan má sjá skondið myndskeið frá því þegar Benatia klappaði Pepe á bakið í leiknum. Pepe stóð undir nafni og lét sig falla með tilþrifum.
#PORMAR Pepe doing what Pepe does best 😂 pic.twitter.com/sewMIhpX1x
— Ł MR LITECOIN BELIEVER Ł (@veehm) June 20, 2018
Athugasemdir