Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 20. júní 2018 06:00
Ingólfur Páll Ingólfsson
PSG mjög óvænt orðað við leikmann Middlesbrough
Adama á ferðinni með Middlesbrough.
Adama á ferðinni með Middlesbrough.
Mynd: Getty Images
Frakklandsmeistarar PSG eru mjög óvænt orðaðir við vængmanninn Adama Traore, leikmann Middlesbrough.

PSG er sagt vera að skoða leikmanninn þar sem þeir þurfa að losa sig við hátt launaða leikmenn liðsins til þess að standast reglur FIFA um að skila ekki of miklu tapi.

Traore er með 18 milljón punda klásúlu í samningi sínum sem PSG er tilbúið að virkja.

Traore gekk til liðs við Middlesbrough frá Aston Villa árið 2016 fyrir 7.4 milljónir punda. Hann stóð sig þokkalega á síðastliðnu tímabili og skoraði fimm mörk auk þess að leggja upp 10 önnur.
Athugasemdir
banner
banner