„Mér fannst við byrja vel en síðustu tíu mínútur fyrri hálfleiks hægðist aðeins á okkur og við töluðum um í hálfleik að byrja betur en við enduðum fyrri hálfleikinn." Sagði Shameeka Fishley en hún skoraði bæði mörk ÍBV í 2-2 jafntefli við Stjörnuna í kvöld.
Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 2 ÍBV
Shameeka gekk til liðs við ÍBV rétt fyrir lokun félagskiptagluggans og hefur byrjað sína fyrstu leiki mjög vel.
„Mér líður vel í eyjum og er glöð að vera hluti af góðu liði og ég vil gera mitt besta í að hjálpa þeim að vinna bikarinn aftur í ár og enda hærra í deildinni."
Shameeka spilaði með Sindra í fyrstu deildinni áður en hún hélt til Verona á Ítalíu. Þaðan kom hún í ÍBV en hún telur Íslensku deildina harðari en þá Ítölsku.
„Íslenska deildinn er harðari á meðan Ítalska deildin er tæknilegri og ég er meiri "phsyical" týpa svo það hentar mér vel."
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir