Fotbolti.net
20.07.14 - 18:24
Daníel Freyr Jónsson

Myndir: Skemmdarvargur keyrði um Stokkseyrarvöll

Skemmdarverkin voru unnin í skjóli nætur.

Skemmdarverkin voru unnin í skjóli nætur.

Canon

Mynd: Gunnar Valberg Pétursson

Miklar skemmdir voru unnar á Stokkseyrarvelli síðastliðna nótt þegar keyrt var á rennblautum vellinum.

Hluti vallarins var spænndur upp og er ljóst að einhver hefur leikið sér að því að spóla á viðkvæmu grasinu.
Margt var um manninn á Stokkseyri um helgina þar sem hin árlegja Bryggjuhátíð fór fram. Vitni sáu bláan pallbíl keyra á vellinum og er skemmdarvargsins leitað.

Stokkseyri teflir fram karlaliði sem leikur í 4. deild karla í sumar og eiga þeir næst heimaleik þriðjudaginn 29. júlí.

Uppfært kl. 20:10:

Búið er að hafa upp á sökudólgunum og verða þeir kærðir til lögreglu.
Myndir: Skemmdarvargur keyrði um Stokkseyrarvöll
Canon

Mynd: Gunnar Valberg Pétursson

Myndir: Skemmdarvargur keyrði um Stokkseyrarvöll
Canon

Mynd: Gunnar Valberg Pétursson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.