Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 20. júlí 2017 21:28
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
1. deild kvenna: Jafnt hjá ÍA og ÍR
Mónika tryggði ÍR stig í kvöld
Mónika tryggði ÍR stig í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA 1 - 1 ÍR
1-0 Bergdís Fanney Einarsdóttir ('52 )
1-1 Mónika Hlíf Sigurhjartardóttir ('60 )

Einn leikur fór fram í 1. deild kvenna í kvöld en það var leikur ÍA og ÍR.

Þrátt fyrir fjörugan leik og marktækifæri hjá báðum liðum tókst hvorugt liðanna að skora í fyrri hálfleik.

En fyrsta markið kom snemma í seinni hálfleik og það gerði Bergdís Fanney Einarsdóttir á 52. mínútu og kom hún ÍA yfir.

ÍR var hins vegar ekki lengi að jafna leikinn en það gerði Mónika Hlíf Sigurhjartardóttir á 60. mínútu.

Bæði lið voru nálægt því að skora undir lok leiksins en inn vildi boltinn ekki og 1-1 jafntefli því staðreynd.

Bæði lið sigla lygnan sjó um miðja deild með 14 stig.
Athugasemdir
banner
banner