„Sara er í fínu standi. Sjúkraþjálfarateymið sér um að halda öllum leikmönnum heilum og það eru allir leikmenn heilir," segir Ásmundur Haraldsson, aðstoðarþjálfari landsliðsins.
Sara Björk Gunnarsdóttir haltraði aðeins í fyrri hálfleik gegn Frakklandi en kláraði allan leikinn.
Sara Björk Gunnarsdóttir haltraði aðeins í fyrri hálfleik gegn Frakklandi en kláraði allan leikinn.
„Við erum ekki búnir að negla hvernig við byrjum. Miðað við frammistöðu (gegn Frakklandi) eru ekki miklar ástæður til breytinga. Við þurfum að hugsa og skoða ýmsa hluti."
Íslenska liðið var á taktískri æfingu í morgun fyrir leikinn gegn Sviss sem fram fer á laugardaginn á Tjarnarhæðinni í Doetinchem.
Sjáðu viðtalið í sjónvarpinu hér að ofan.
Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.
Leikir Íslands á EM:
Ísland 0-1 Frakkland
Ísland 1-2 Sviss
Ísland 0-3 Austurríki
Athugasemdir