Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 20. júlí 2017 18:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Brighton fær Norðmann (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Brighton sem er nýliði í ensku úrvalsdeildinni hefur gengið frá kaupum á ungum Norðmanni.

Leikmaðurinn heitir Mathias Normann og kemur frá norska liðinu Bodo/Glimt.

Hann skrifaði undir þriggja ára samning en hann á að baki 42 leiki fyrir norska liðið sem leikur í næstefstu deild í Noregi.

Þetta er fimmti leikmaðurinn sem gengur til liðs við Brighton í sumar en þeir tryggðu sæti sitt í efstu deild eftir að hafa lent í öðru sæti í ensku Championship deildinni.



Athugasemdir
banner
banner
banner