Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 20. júlí 2017 20:45
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
EM kvenna: Gestgjafarnir í góðri stöðu
Byrjunarlið Hollands í kvöld
Byrjunarlið Hollands í kvöld
Mynd: Getty Images
Holland 1 - 0 Danmörk
1-0 Sherida Spitse ('20 , víti)

Gestgjafar Hollands tóku á móti Danmörku á Evrópumóti kvenna í kvöld en þetta var annar leikur liðanna á mótinu. Bæði lið unnu fyrstu leiki sína.

Hollendingar fengu vítaspyrnu á 20. mínútu og úr henni skoraði Sherida Spitse.

Danmörk náði ekki að jafna leikinn og þar við sat. 1-0 sigur heimakvenna.

Með sigrinum er Holland nánast komið áfram í 8 liða úrslit mótsins en lokaleikur gestgjafanna er gegn Belgíu. Danmörk mætir Noregi í síðustu umferðinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner