KR 0 - 2 Maccabi Tel Aviv
0-1 Omer Atzily ('57 )
0-2 Dor Peretz ('66 )
0-1 Omer Atzily ('57 )
0-2 Dor Peretz ('66 )
KR og ísraelska liðið Maccabi Tel Aviv mættust í seinni leik sínum í forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld á Alvogen-vellinum í Vesturbænum.
Brekkan var brött fyrir KR-inga fyrir leikinn því fyrri leik liðanna endaði með 3-1 sigri Tel Aviv.
Viðar Örn Kjartansson leikur með Tel Aviv og var hann í byrjunarliðið liðsins og lék hann allan leikinn.
Markalaust var í hálfleik en í þeim síðari reyndust Ísraelarnir sterkari.
Omer Atzily kom Tel Aviv yfir á 57. mínútu eftir stoðsendingu frá Viðari og 9. mínútum síðar skoraði Dor Peretz annað mark leiksins og tryggði Tel Aviv góðan 2-0 sigur.
KR er því úr leik líkt og Valsmenn fyrr í kvöld en Tel Aviv er komið áfram og mæta þeir Panionios frá Grikklandi í næstu umferð.
Athugasemdir