Aston Villa hefur keypt miðjumanninn reynda Glenn Whelan frá stoke.
Talið er að kaupverðið hljóði upp á 1,5 milljón punda en Whelan krotaði undir tveggja ára samning hjá Villa.
Whelan mun þar meðal annars berjast við Birki Bjarnason um sæti í byrjunarliðinu.
Talið er að kaupverðið hljóði upp á 1,5 milljón punda en Whelan krotaði undir tveggja ára samning hjá Villa.
Whelan mun þar meðal annars berjast við Birki Bjarnason um sæti í byrjunarliðinu.
Whelan hefur verið undanfarin níu ár hjá Stoke en hann lék yfir 300 leiki með félaginu.
Hann er fjórði leikmaðurinn sem Aston Villa fær í sumar en áður höfðu John Terry, Ahmed Elmohamady og markvörðurinn Sam Johnstone komið til félagsins.
Athugasemdir