Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   fim 20. júlí 2017 21:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pedro Hipolito: Við þurfum fleiri gæðaleikmenn
Pedro (hér til hægri).
Pedro (hér til hægri).
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Fram hefur tapað síðustu fjórum leikjum sínum.
Fram hefur tapað síðustu fjórum leikjum sínum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það hefur lítið gengið hjá Fram síðan hinn portúgalski Pedro Hipolito tók við liðinu fyrir nokkrum vikum.

Hann hefur stýrt liðunu í fjórum leikjum og þeir hafa allir tapast.

Lestu um leikinn: Haukar 3 -  2 Fram

Í kvöld tapaði Fram 3-2 gegn Haukum. Safamýrarpiltar voru betri í fyrri hálfleiknum, en í hálfleik breyttu Haukar um kerfi og það kom Fram í opna skjöldu. Haukar unnu að lokum 3-2 eins og áður segir.

„Þetta eru mjög slæm úrslit," sagði Pedro þegar Fótbolti.net heyrði í honum orðið eftir leik. „Við erum miklu betra liðið í fyrri hálfleiknum. Við skoruðum eitt, en við hefðum getað skorað tvö eða þrjú mörk," sagði sá portúgalski.

„Við gerðum mikið af mistökum í seinni hálfleiknum. Andstæðingurinn skorar þrjú mörk, því næst sækjum við, fáum fullt af færum en skorum ekki," sagði Pedro.

„Þetta eru vonbrigði þar sem við lögðum nægilega mikið á okkur til að vinna leikinn."

Pedro segist geta tekið jákvæða hluti úr leiknum í dag.

„Já, við getum tekið þennan góða fyrri hálfleik. Við getum líka tekið síðustu 15 mínúturnar af leiknum. Það sem drap leikinn hjá okkur voru fyrstu 25 mínúturnar í fyrri hálfleiknum."

„Við þurfum að vinna, við þurfum að bæta okkur og við þurfum að hafa meiri gæði. Við þurfum fleiri gæðaleikmenn."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.



Athugasemdir
banner
banner