Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 20. júlí 2017 06:00
Magnús Már Einarsson
Pennington til Leeds á láni (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Leeds hefur fengið miðvörðinn Matthew Pennington á láni frá Everton út komandi tímabil.

Hinn 22 ára gamli Pennington á níu leiki að baki með aðalliði Everton.

Í apríl síðastliðnum skoraði hann í grannaslag gegn Liverpool í ensu úrvalsdeildinni.

Pennington er tíundi leikmaðurinn sem Leeds fær í sumar á eftir Samuel Saiz, Ezgjan Alioski, Vurnon Anita, Caleb Ekuban, Madger Gomes, Matuesz Klich, Hadi Sacko, Felix Wiedwald og Pontus Jansson.

Pennington á að berjast við Jansson og Liam Cooper um stöðu í miðverðinum hjá Leeds.
Athugasemdir
banner