banner
   fim 20. júlí 2017 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Perisic spilar líklega meira en aðrir í æfingaferð Inter
Perisic hefur verið orðaður við Man Utd í sumar.
Perisic hefur verið orðaður við Man Utd í sumar.
Mynd: Getty Images
Ivan Perisic hefur verið sterklega orðaður við Manchester United í sumar og fyrir nokkrum dögum bárust fréttir um það að samkomulag væri nánast í höfn. Þrátt fyrir það er sá króatíski mættur til Asíu í æfingaferð með ítalska liðinu Inter.

Inter er þessa stundina í Kína, en miklar líkar eru á því að Perisic muni spila með liðinu í æfingaferðinni.

Inter og Manchester United hafa, samkvæmt Sky Sports, ekki enn komist að samkomulagi um kaupverð. Inter vill fá 48 milljónir punda fyrir Perisic, en United er ekki tilbúið að borga það.

Luciano Spalletti, stjóri Inter, ætlar að passa það að Perisic verði klár ef hann verður leikmaður Inter þegar tímabilið hefst.

„Perisic mun spila þar sem hann tók ekki þátt í síðustu æfingaleikjum okkar," sagði Spalletti við blaðamenn.

„Hann gæti jafnvel spilað meira en aðrir."
Athugasemdir
banner
banner
banner