Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 20. júlí 2017 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Wijnaldum telur að Liverpool geti barist um titilinn
Mynd: Getty Images
Georginio Wijnaldum telur að Liverpool sé með leikmannahóp sem geti barist um sigur í ensku úrvalsdeildinni.

Liverpool endaði í fjórða sæti á síðasta tímabili, 17 stigum frá Englandsmeisturum Chelsea.

Liverpool tapaði fjölda stiga gegn liðum í neðri hlutanum, en Wijnaldum telur að liðið hafi lært af því.

„Ég vil ekki segja strax að við getum unnið titilinn, en við erum með hóp sem getur barist um hann," sagði Wijnaldum.

„Ég er fullviss um það að við munum ekki gera sömu mistök og á síðasta tímabili," sagði hann við Sky Sports.

„Við erum með góðan grunn og við þurfum halda hlutunum sem við gerðum rétt á síðasta tímabili."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner