Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 20. júlí 2017 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Xavi: Messi er vél sem var smíðuð til að spila fótbolta
Mynd: Getty Images
Xavi, fyrrum leikmaður Barcelona, hefur mikið álit á argentíska snillingnum Lionel Messi.

Messi, sem hefur leikið allan sinn feril með Börsungum, er af flestum talinn einn besti fótboltamaður allra tíma.

„Messi getur gert allt það sem Xavi, Iniesta og Busquets gera og haldið áfram að gera það sem Messi gerir," sagði Xavi, sem leikur í dag í Katar, við The Tactical Room.

„Hann er eins og vél sem var smíðuð til að spila fótbolta."

Sögusagnir um að Messi væri á förum frá Barcelona voru skotnar niður fyrr í þessum mánuði þegar hann skrifaði undir nyjan samning. Hann verður í Katalóníu að minnsta kosti til ársins 2021.
Athugasemdir
banner
banner
banner