Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis í Pepsi-deild karla, var ósáttur með 1-0 tap liðsins gegn KR í kvöld.
Gary Martin skoraði eina mark leiksins í kvöld en Ágúst vildi fá meira út úr leiknum og var mjög svekktur með úrslitin.
,,Ég er mjög ósáttur. Við komum hingað til að fá stig eða fleiri en það gekk ekki eftir og við töpuðum 1-0 á mjög erfiðum útivelli og miðað við hvernig seinni hálfleikur spilaðist þá hefði ég viljað öll stigin," sagði Ágúst Gylfason við fjölmiðla eftir leik.
,,Þetta er mjög svekkjandi. Við áttum að fá meira út úr þessu og ég er drullufúll að hafa ekki fengið meira."
,,Við lítum vel út oft á tíðum en það eru þessi stig sem að telja greinilega og við þurfum að fara að pota fleiri mörkum inn," sagði hann ennfremur.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.
Athugasemdir